UM FERÐINA
07.06.26 – 23.07.26
Ítalía
Milan · Como · Garda · Ortisei · Cortina d’Ampezzo




Við byrjum á stuttu stoppi í Mílanó áður en við leggjum af stað á bílaleigubíl og hefjum ferðalagið um norðurhluta Ítalíu. Við stoppum við Como- og Garda-vötnin til að njóta umhverfisins áður en leiðin liggur til Dólómítanna, þar sem göngutúrar og fallegt útsýni tekur við.
Mallorca
Hús nálægt Campos
Á Mallorca hittum við fjölskylduna í 60 ára afmælisferð þar sem við verðum öll saman í húsi. Við ætlum að njóta daganna saman, fara á ströndina, vera við sundlaugina og hafa það einfaldlega notalegt.
Indónesía
Canggu · Komodo · Gili Air · Sidemen · Ubud · Uluwatu






Í Indónesíu ætlum við að kynnast menningunni, skoða nýja staði og njóta lífsins við sjóinn. Ferðin byrjar í Canggu áður en við förum í þriggja daga siglingu um Komodo-þjóðgarðinn og heimsækjum mismunandi eyjar á leiðinni. Á Gili Air ætlum við að kafa, slaka á og njóta rólegri daga við sjóinn. Þaðan höldum við áfram til Sidemen og Ubud þar sem við skoðum meðal annars Monkey Forest og upplifum aðra hlið á Balí. Ferðinni lýkur síðan í Uluwatu.